Sextíu kíló af sunnudögum, upplestur og matur

Má bjóða þér að hlusta á Hallgrím Helgason lesa úr nýútkominni bók sinni um Siglufjarðarævintýrið, Sextíu kíló af sunnudögum, og snæða með honum á eftir dásamlega marokkóska máltíð?

Hótel Siglunes verður með menningu í skammdeginu og fagnar þessum velgjörðarmanni Siglufjarðar sem hefur fært okkur söguna um síldarævintýrið í formi þriggja ómótstæðilegra bóka.
Dagskráin hefst með upplestri klukkan 18:00  þann 26. nóvember og á eftir býðst gestum tveggja rétta kvöldverður á tilboðsverði 6900 kr.