Jólatónleikar Síldarminjasafnsins

Jólatónleikar Síldarminjasafnsins verða nú haldnir í þriðja sinn og fara fram í Bátahúsinu miðvikudagskvöldið 4. desember nk.

Jólatríó skipað þeim Daníel Pétri Daníelsson, Herði Ingi Kristjánssyni og Tinnu Hjaltadóttur flytur gestum úrvals jólalög og hefjast tónleikarnir kl. 20:00.
 
Við bjóðum íbúa Fjallabyggðar og aðra gestkomandi hjartanlega velkomna. Enginn aðgangseyrir er að tónleikunum sem eru ætlaðir bæði börnum og fullorðnum.