Vortónleikar Tónskóla Ólafsfjarðar

Vortónleikar Tónskóla Ólafsfjarðar verða í Tjarnarborg Þriðjudaginn 19. maí kl. 18.00. Þar koma fram nemendur skólans með skemmtilega og fjölbreytta dagskrá.  Vortónleikar verða á Hornbrekku mánudaginn 18. maí og miðvikudaginn 20. maí kl. 14.00 báða dagana. 

Skólaslit Tónskólans,verða í Tjarnarborg þriðjudaginn 26. maí kl. 18.00. Þar verða tónlistaratriði og nemendum skólans afhent prófskírteini og viðurkenningar.
Í framhaldi af því verður haldin kökuveisla og eru nemendur beðnir að koma með brauð og kökur