Vinnuskóli Fjallabyggðar 2021

Nemendur Vinnuskólans:
Vinnuskólinn er fyrir ungmenni sem nýlokið hafa 8., 9. eða 10.bekk.

Skráning:
Forráðamenn þurfa að skrá unglinginn sinn í Vinnuskólann. Skráningin fer fram í íbúargátt Fjallabyggðar, þar sem eyðublað er fyllt út vegna vinnuskóla. Athugið að við skráningu þarf nemandi að eiga bankareikning sem stofnaður er á kennitölu hans. Einnig er hægt að skrá ungling með því að senda póst á haukur@fjallabyggd.is

Vakin er athygli á að árið sem 16 ára aldri er náð verður skattskylda eins og hjá fullorðnum og þarf launþegi að ráðstafa persónuafslætti til vinnuveitanda. Ráðstöfun persónuafsláttar er á ábyrgð launþega. Upplýsingar um hvernig ráðstafa eigi persónuafslætti verða sendar með tölvupósti.

Dagsetningar:
Skólinn hefst mánudaginn 7. júní kl. 8.30 hjá öllum. Nemendur búsettir á Siglufirði mæta í Áhaldahús Fjallabyggðar. Nemendur búsettir á Ólafsfirði mæta í aðstöðu Áhaldahúss (norðan við Skiltagerð).

Áætlaður lokadagur Vinnuskólans er föstudaginn 30. júlí. Þó gefst ungmennum sem lokið hafa 10. bekk kostur á að vinna til 6. ágúst.

Vinnutími:
Ungmenni sem nýlokið hafa 8. bekk: Mætt er fyrir hádegi fimm daga í viku, frá kl.8:30 til kl.12. Einnig er hægt að haga vinnu þannig til ef einstaklingur vill frekar vinna frá 13:00 – 16:30 þá er það í boði líka.Daglegur vinnutími reiknast 3,5 klst. eða 17,5 tímar á viku.

Ungmenni sem nýlokið hafa 9. bekk: Unnið frá kl.8:30 til 12 og frá kl. 13:00 til 16:30. Daglegur vinnutími reiknast 7 klst. Unnið er 3,5 klst. fyrir hádegi á föstudögum. Samtals möguleiki á 31,5 klst. vinnu á viku.

Ungmenni sem nýlokið hafa 10. bekk: Unnið frá kl.8:30 til 12 og frá kl. 13:00 til 16:30. Daglegur vinnutími reiknast 7 klst. Samtals möguleiki á 35 klst. vinnu á viku.

Vinnuskólinn áskilur sér rétt til að takmarka frekar vinnutíma ef skráning fer fram úr áætlunum.

Dagskrá:
Almenn störf og áherslur í Vinnuskóla eru garðyrkja, gróðursetning, hirðing á lóðum og opnum svæðum bæjarins.

Laun:
Allar tölur eru án orlofs:

Unglingar sem nýlokið hafa 8. bekk 35% af lfl. 117 kr. 779,30 pr.klst. 3,5 klst. á dag mán-fös.
Unglingar sem nýlokið hafa 9. bekk 40% af lfl. 117 kr. 890,63 pr.klst. 7 klst. á dag mán-fim 3,5 klst á fös.
Unglingar sem nýlokið hafa 10. bekk 60% af lfl. 117 kr. 1.335,95 pr.klst. 7,0 klst. á dag mán-fim 3,5 klst á fös.

Eineltisáætlun Vinnuskóla Fjallabyggðar  Reglur Vinnuskóla Fjallabyggðar