Á 258. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar sem haldinn var í
Ráðhúsinu Gránugötu 24 Siglufirði
þriðjudaginn 22. maí 2012, var meðal annars tekið fyrir mál grunnskólans - útboð.
Fundinn sátu: Ólafur Helgi Marteinsson, Bjarkey Gunnarsdóttir, Egill Rögnvaldsson, Sigurður Valur Ásbjarnarson og Ólafur
Þór Ólafsson.
Bókað var neðanritað.
4. 1204103 - Grunnskóli 2. áfangi útboðsform
Tæknideild hefur boðið verkið út í samræmi við
innkaupareglur bæjarfélagsins.
Ekkert tilboð barst.
Bæjarráð samþykkir því að fela tæknideild bæjarfélagsins að leita samninga í einstaka verkþætti.
Fyrst verði rætt við iðnaðarmenn innan sveitarfélagsins.
Undirritaður hvetur alla þá aðila sem hug hafa á að takast á við verkefnið að snúa sér til
deildarstjóra tæknideildar, Ármanns Viðars Sigurðssonar á skrifstofu Fjallabyggðar
um frekari upplýsingar og gögn, þriðjudaginn 29.05.2012.
„Verkið verði þ.m. unnið af iðnaðarmönnum Fjallabyggðar undir stjórn tæknideildar.“
Kveðja
Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri.