Vika símenntunar 22.-28. september

Vika símenntunar verður 22. til 28. september nk. Markmið með viku símenntunar er að auka símenntun í atvinnulífinu og hvetja fólk til að leita sér þekkingar alla ævi. Í viku símenntunar 2008 er lögð áhersla á fræðslu í fyrirtækjum og sem fyrr að ná til þeirra sem hafa litla formlega menntun. SÍMEY – Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar - mun standa að ýmiss konar kynningarstarfsemi í vikunni og verður dagskráin kynnt nánar er nær dregur.  Miðvikudagurinn 24. september er árlegur símenntunardagur í fyrirtækjum og stofnunum. Fyrirtæki eru hvött til að tileinka þann dag fræðslumálum, t.d. með því kynna starfsmönnum fræðslustefnu fyrirtækisins, bjóða upp á námskeið eða fá kynningar frá fræðsluaðilum, stéttarfélögum eða styrktarsjóðum. Fræðsluaðilar, fyrirtæki, stofnanir, samtök og allir þeir sem koma að símenntun eru hvattir til að nýta sér verkefnið til hvatningar og kynningar á því símenntunarstarfi og starfsþjálfun sem fram fer hér á landi. Jafnframt biðjum við fyrirtæki, félög og stofnanir að senda okkur upplýsingar á tölvupósti um það sem gert er í tilefni af viku símenntunar. Menntamálaráðuneytið stendur fyrir viku símenntunar en framkvæmd verkefnisins er í nánu samstarfi við símenntunarstöðvarnar níu á landsbyggðinni og Mími-símenntun og Framvegis á höfuðborgarsvæðinu. Vika símenntunar er stórt og árvisst verkefni þar sem fjölmargir hagsmunaaðilar eru kallaðir til samstarfs um að vekja athygli á mikilvægi símenntunar og hvetja fólk til að leita sér þekkingar.