Viðtalstími bæjarfulltrúa Fjallabyggðar á Siglufirði

Bæjarstjórn Fjallabyggðar býður upp á viðtalstíma með bæjarfulltrúum einu sinni í mánuði og var fyrsti fundur haldinn 28 janúar sl..

Fundirnir verða haldnir síðasta mánudag hvers mánaðar, til skiptis á Siglufirði og í Ólafsfirði og eru íbúar Fjallabyggðar hvattir til að koma og hitta bæjarfulltrúa og ræða málefni sveitarfélagsins.

 

Næsti viðtalstími bæjarfulltrúa verður mánudaginn 25. febrúar nk. að Gránugötu 24, Siglufirði kl. 16:30-17:30. Til viðtals verða þau Ingibjörg G. Jónsdóttir, Tómas Atli Einarsson og Særún Hlín Laufeyjardóttir.

                
 Ingibjörg G. Jónsdóttir               Særún Hlín Laufeyjardóttir      Tómas Atli Einarsson

 

 Dagatal 2019