Viðtalstímar bæjarfulltrúa Fjallabyggðar hefjast á ný 24. febrúar nk. á Siglufirði

Bæjarstjórn Fjallabyggðar býður upp á viðtalstíma með bæjarfulltrúum einu sinni í mánuði og er fyrsti viðtalstími á árinu þann 24. febrúar nk. 

Fundirnir verða haldnir síðasta mánudag hvers mánaðar, til skiptis á Siglufirði og í Ólafsfirði og eru íbúar Fjallabyggðar hvattir til að koma og hitta bæjarfulltrúa og ræða málefni sveitarfélagsins.

Næsti viðtalstími bæjarfulltrúa verður mánudaginn 24. febrúar að Gránugötu 24, Siglufirði kl. 16:30-17:30. 

 


Til viðtals verða bæjarfulltrúarnir Ingibjörg Guðlaug Jónsdóttir, S. Guðrún Hauksdóttir og Særún Hlín Laufeyjardóttir. 

                 

 Ingibjörg G. Jónsdóttir                S. Gruðún Hauksdóttir       Særún Hlín Laufeyjardóttir