Kór eldri borgara
Dagþjónusta aldraðra á Siglufirði fer fram í Skálarhlíð, Hlíðarvegi 45. Vetrarstarfið er nú að komast í gang og hefst formlega mánudaginn 5. september. Eru allir eldri borgarar og öryrkjar hvattir til að kynna sér starfið og þær tómstundir sem þar eru í boði.
Má þar nefna; föndur, boccia, vatnsleikfimi, bingó, félagsvist, bridge, bæjarferðir og fleira.
Myndasýning hefst 12. september. Fönduraðstaðan er opin eftir hádegi, alla virka daga, fyrir þá sem vilja nýta sér aðstöðuna.
Allar nánari upplýsingar um þjónustuna veitir Helga Hermannsdóttir í síma 467 1147 eða 898 1147.
Dagskrá er eftirfarandi: (pdf - til útprentunar)
Mánudagar
|
Þriðjudagar
|
Miðvikudagar
|
Fimmtudagar
|
Föstudagar
|
Kl. 09:00 Morgunmatur
|
Kl. 09:00 Morgunmatur
|
Kl. 09:00 Morgunmatur
|
Kl. 09:00 Morgunmatur
|
Kl. 09:00 Morgunmatur
|
Kl. 10:00 Vatnsleikfimi
|
Kl. 10:00 Boccia íþróttahús
|
Kl. 10:00 Vatnsleikfimi
|
|
Kl. 10:00 Boccia íþróttahús
|
Kl. 10:30 Myndasýning
|
|
Kl. 10:50 Litla ræktin 1. hæð Skálarhlíð
|
Kl. 10:50 Litla ræktin 1. hæð Skálarhlíð
|
|
Kl. 12:00 Matur
|
Kl. 12:00 Matur
|
Kl. 12:00 Matur
|
Kl. 12:00 Matur
|
Kl. 12:00 Matur
|
Kl. 13:00 Félagsvist Kl. 13:00 Föndurstofan opin
|
Kl. 13:00 Bæjarferð
Kl. 13:00 Föndurstofan opin
|
Kl. 13:00 Bridge
Kl. 13:00 Föndurstofan opin
|
Kl. 13:00 Föndurstofan opin
|
Kl. 13:00 Bæjarferð
Kl. 13:00 Föndurstofan opin
|
|
Kl. 14:15 Heimsókn sóknarprests. Upplestur og söngur
|
|
Kl. 13:30 Bingó
|
|
Kl. 14:30 Kaffi
|
Kl. 14:30 Kaffi
|
Kl. 14:30 Kaffi
|
Kl. 14:30 Kaffi
|
|
Nánari upplýsingar um dagþjónustu aldraðra má sjá hér.