Verkefnasjóður sjávarútvegsins

Verkefnasjóður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, deild um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði, auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna- og þróunarverkefna.

Sjóðurinn mun fyrst og fremst styrkja rannsóknir á sjávarlífverum sem nú eru nytjaðar eða sem mögulegt væri að nytja. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að framlag til deildar sjóðsins um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði verði hækkað um 25 m.kr. á árinu. Framlag til sjóðsins verður því 75 m.kr. á árinu 2008. Þessari aukningu verður nú að öðru jöfnu varið til að hækka styrki til styttri, hagnýtra verkefna

Allir geta sótt um styrki; einstaklingar, fyrirtæki, rannsókna- og háskólastofnanir. Í stærri verkefnum er sérstaklega hvatt til samstarfs mismunandi aðila með þátttöku vísindamanna víða af landinu.

Við mat umsókna verður lögð áhersla á nýnæmi verkefnisins m.t.t. nýrrar þekkingar og/eða aukinna nýtingarmöguleika á lífríki sjávar. Á árinu 2008 verða styrkt allt að 12 verkefni að hámarki 5 m.kr. hvert og um 15 minni verkefni 1-2 m.kr. hvert.

Umsóknarfrestur er til 10. nóvember 2008 og skulu umsóknir sendar til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík. Umsóknirnar skulu einnig berast á rafrænu formi á netfangið hulda.lilliendahl@slr.stjr.is.

Umsóknir sem berast eftir 10. nóvember verða ekki teknar gildar nema póststimpill sýni að umsóknin hafi verið póstlögð ekki síðar en þann dag.

Þeir sem fengu styrk úr sjóðnum á árinu 2007 og hyggjast sækja um framhaldsstyrk skulu skila skýrslu um stöðu verkefnisins, ella koma viðkomandi umsóknir ekki til greina við úthlutun.

Nánari upplýsingar um sjóðinn og leiðbeiningar um frágang umsókna er að finna hér

  

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið.