Veggmyndasýning í Neon 14. ágúst

Emma Sanderson grafískur hönnuður búsett á Siglufirði fór af stað með Teiknisamkeppni með barnasmiðju og innanhúss veggmyndaverkefni (Mural Workshop) í Fjallabyggð í sumar.

Emma fékk styrk frá Fjallabyggð á árinu ásamt styrk úr Barnamenningarsjóði til verkefnisins.

Samkeppnin sneri að því að fá börn í Fjallabyggð til að senda inn mynd í samkeppnina og voru sex teikningar valdar úr hópi þeirra sem bárust. Þau börn völdust til verkefnisins máluðu svo vinningsteikningarnar sínar í veggmynd í NEON undir handleiðslu Emmu Sanderson í byrjum ágúst sl. Á vinnustofunni fengu börnin m.a. fræðslu um veggmálverk, leiðsögn og hvernig gagnvirk veggmynd með sýndarveruleika (SV) er unnin. Emma mun að auki vinna stóra veggmynd í Sundhöll Siglufjarðar í haust.

Á morgun miðvikudaginn 14. ágúst kl. 16:00-18:00 verður veggmyndin afhjúpuð í Félagsmiðstöðinni NEON, Suðurgötu 4, Siglufirði (fyrir ofan Kjörbúðina). Börnin sem unnu að veggmyndinni voru þau Maya, Aðalheiður Jórunn, Alda Máney, Benjamín Aron, Ingimar Skúli og Kristín Ósk.

Allir eru hjartanlega velkomnir og að koma og skoða veggmyndina.

Emma Sanderson er grafískur hönnuður frá Brisbane í Ástralíu sem býr nú á Siglufirði. Helstu viðskiptavinir hennar eru ástralskar frumbyggjaheilbrigðisstofnanir, sveitarfélög, mennta- og samfélagsstofnanir. Árið 2011 útskrifaðist hún með Bachelor of Visual Arts frá University of Sydney (Sydney College of the Arts) og þar áður lauk hún diplómanámi í grafískri hönnun. Emmu finnst gaman að teikna og mála. Hún er nú sjálfstætt starfandi grafískur hönnuður, myndskreytari og býr til sérsniðnar handmálaðar veggmyndir.