Frá undirskrift samkomulags. Mynd: Margrét Víkingsdóttir.
Nú fyrir helgi staðfestu Dalvíkurbyggð, Fjallabyggð og Ferðatröll samstarf sitt um að koma upplýsingavefsíðu um ferðaþjónustu
á Tröllaskaga, visittrollaskagi.is, í loftið.
Undirbúningur og vinna er þegar hafin en stefnt er að því að vefsíðan verði tilbúin í byrjun júní.
Vefsíðunni visittrollaskagi.is er ætlað að kynna ferðaþjónustu á Tröllaskaga með það að markmiði að sú
fjölbreytni og þeir möguleikar sem í svæðinu búa komi betur fram en áður. Með mikilli fjölgun ferðamanna á Íslandi er
mikilvægt að koma á framfæri stöðum utan þjóðvegar eitt og hefur Tröllaskagi einstakt tækifæri til vaxtar eftir tilkomu
Héðinsfjarðargangna. Mikil uppbygging hefur verið í ferðaþjónustu á Tröllaskaga síðustu ár og eru fjölmörg
öflug fyrirtæki í Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð.
"Það var kominn tími á meiri samvinnu á þessu svæði. Meiri sýnileiki gagnast öllum og sameinuð komum við sterkar fram og vekjum
meiri athygli. Það má þakka bæjarstjórum, kynningarfulltrúum og bæjarstjórnum sveitarfélaganna að verkefnið er komið af
stað. Það var vel tekið í erindið þegar það var sent inn til sveitarfélaganna auk þess sem að á bakvið það eru
öll helstu fyrirtækin í ferðaþjónustu á Tröllaskaga“ segir Freyr Antonsson formaður Ferðatrölla.
Það voru þau Sigurður V. Ásbjarnarson bæjarstjóri Fjallabyggðar, Svanfríður Inga Jónasdóttir sveitarstjóri
Dalvíkurbyggðar og Freyr Antonsson f.h. Ferðatrölla sem skrifuðu undir samkomulagið.