Vátryggingaútboð Fjallabyggðar 2025-2027

Fjallabyggð og tengdir aðilar óska eftir tilboðum í vátryggingar fyrir tímabilið 2025-2027

Um er að ræða lög- og samningsbundnar tryggingar auk annarra trygginga (EES útboð nr. 302324-2024.)

Útboðsgögn er hægt að fá með því að senda tölvupóst á gudmundurm@consello.is frá og með 28.5.24 kl 9:00.

Tilboðum skal skila í ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði fyrir kl. 12:00, 28.6.2024 og verða þau opnuð þar í viðurvist þeirra bjóðenda sem þar mæta.