Úthlutun úr Vaxtarsamningi Eyjafjarðar

Óskað er eftir umsóknum um verkefnastuðning frá Vaxtarsamningi Eyjafjarðar. Allar  atvinnugreinar hafa jafna möguleika á stuðningi, uppfylli umsóknir skilyrði og helstu atriði sem lögð eru til grundvallar við mat umsókna. Skilyrði er að í verkefni sé um að ræða samstarf tveggja eða fleiri aðila og skal minnst helmingur þátttakenda vera fyrirtæki.

Áhersla á verkefni tengd millilandaflugi.
Lögð verður sérstök áhersla á verkefni sem með einhverjum hætti tengjast eða styðja við beint millilandaflug til Akureyrar. Áfram verður horft til almennra markmiða Vaxtarsamningsins við verkefnavalið, en þau eru tengsl háskóla og atvinnulífs, markaðssetning og útrás og nýsköpun og vöxtur á Eyjafjarðarsvæðinu.

Verkefni sem hljóta munu samþykki hjá Vaxtarsamningi Eyjafjarðar fá allt að 50% heildarkostnaðar við þau, gegn mótframlagi annarra þátttakenda.
Umsóknarfrestur til 3. febrúar 2010.

Umsóknareyðublöð eru á heimasíðu Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, www.afe.is  Nánari upplýsingar veitir Hjalti Páll Þórarinsson, verkefnisstjóri Vaxtarsamnings Eyjafjarðar, í síma 460-5700 eða á hjalti@afe.is . Umsóknir skulu berast til Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, Skipagötu 9, 600 Akureyri eða á netfangið hjalti@afe.is .