ÚTBOÐ v/ Leikskála

Leikskálar Siglufirði
Leikskálar Siglufirði

Fjallabyggð óskar eftir tilboðum í viðbyggingu og endurbætur á leikskólanum Leikskálar við Brekkugötu 2 á Siglufirði.

Verkið felst í að byggja við núverandi leikskóla tvær leikskóladeildir, samtals 267 m2 og gera breytingar i eldra húsnæði sem felast í endurbótum á starfsmannaaðstöðu og uppsetningu á loftræstikerfi fyrir allt húsið.

Verklok eru 15. ágúst 2016.

Útboðsgögn verða afhent á bæjarskrifstofu Fjallabyggðar að Gránugötu 24 á Siglufirði þriðjudaginn 12. janúar 2016, eftir kl. 13:00 gegn gjaldi kr. 5.000,-.

Tilboð verða opnuð á bæjarskrifstofu Fjallabyggðar, Gránugötu 24 á Siglufirði, fimmtudaginn 28. janúar 2016 kl. 14:00, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Allar nánari upplýsingar veitir;
Ármann Viðar Sigurðsson
Deildarstjóri tæknideildar Fjallabyggðar
Sími: 464 9100