Útboð - Malbikun í Fjallabyggð

Útboð - Malbikun í Fjallabyggð 2016
Fjallabyggð óskar eftir tilboðum í verkefnið „Malbikun í Fjallabyggð 2016“.
Helstu magntölur eru:
Afrétting með límefni = 1.500 m2
Yfirlagnir með límefni = 14.000 m2
Nýlagnir = 5.260 m2

Yfirlögnum skal vera lokið 10. júlí 2016 og nýlögnum 1. september 2016
Útboðsgögn verða afhent á bæjarskrifstofum Fjallabyggðar, Gránugötu 24, 580 Siglufirði frá og með þriðjudeginum 29. mars 2016. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 12. apríl 2016 klukkan 13:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.