Á heimasíðu Úrvinnslusjóðs er eftirfarandi um skilagjald á
ökutæki:
Greiða skal skilagjald, 15.000 kr., hverjum þeim sem afhendir gjaldskylt ökutæki til móttökustöðvar til endurnýtingar eða endanlegrar
förgunar, enda hafi ökutækið verið afskráð og úrvinnslugjald greitt a.m.k. einu sinni af viðkomandi ökutæki. Ökutæki sem eru
skráð fyrir 1980 falla ekki undir kerfið enda hefur aldrei verið greitt af þeim úrvinnslugjald.
Í Fjallabyggð er tekið á móti bifreiðum til úrvinnslu á gámasvæðum bæjarins, starfsmenn Íslenska
Gámafélagsins taka á móti þeim og útfylla tilskylda pappíra.
Við móttöku bifreiða til úrvinnslu eru gefin út skilavottorð eftir að verksmiðjunúmer bifreiðarinnar og skoðunarvottorð hafa
verið sannreynd. Móttökuaðili sér síðan um að hreinsa öll spilliefni úr bifreiðinni sem síðan er send í
endurvinnsluferil.
Valur Þór Hilmarsson, umhverfisfulltrúi