Úrslit í Menningarminjakeppni grunnskólanna og European Heritage Makers Week

Í vor stóð Minjastofnun Íslands fyrir Menningarminjakeppni grunnskólanna í tilefni af Menningararfsári Evrópu 2018. Menningarminjakeppnin er hluti af stærri viðburði Evrópuráðsins, European Heritage Makers Week. Í Menningarminjakeppnina bárust sjö verkefni frá tveimur skólum: Grunnskólanum á Drangsnesi og Grunnskóla Fjallabyggðar.

Úrslit í Menningarminjakeppni grunnskólanna voru tilkynnt fimmtudaginn 5. júlí og hreppti Magndís Hugrún Valgeirsdóttir, nemandi í 6. bekk í Grunnskólanum á Drangsnesi, fyrsta sætið. Vinningsverkefni Magndísar er þriggja mynda vatnslitasería sem sýnir ólíka þætti tilverunnar á hvalveiðistöðinni á Strákatanga við Steingrímsfjörð á meðan hún var starfrækt á sautjándu öld.

Nemendur úr Grunnskóla Fjallabyggðar hrepptu annað sætið, þær Sandra Rós Bryndísardóttir, Þórný Harpa Rósinkranz Heimisdóttir og Karen Sif Sigurbergsdóttir, fyrir myndbandsverk um Evanger verksmiðjuna á Siglufirði.

Í þriðja sæti var Guðbjörg Ósk Halldórsdóttir, nemandi í 4. bekk í Grunnskólanum á Drangsnesi, en hún samdi örljóð um það sem hún hafði lært í heimsókn á Strákatanga.

Öll verkefnin sem bárust í Menningarminjakeppnina voru send út í European Heritage Makers Week. Alls bárust þangað 82 verkefni frá átta löndum. 
Hér má sjá heimasíðu European Heritage Makers Week: http://www.europeanheritagedays.com/European-Heritage-Makers-Week/

Hér má sjá frekari upplýsingar um Menningarminjakeppni grunnskólanna

Í dómnefnd sátu Agnes Stefánsdóttir, verkefnastjóri hjá Minjastofnun Íslands, Helga Maureen Gylfadóttir, verkefnastjóri sýninga hjá Borgarsögusafni Reykjavíkur og Elísa Björg Þorsteinsdóttir, listfræðingur.