Upplýsingafundur vegna eldsumbrota í Holuhrauni

Markaðsstofa Norðurlands í samstarfi við Samtök ferðaþjónustunnar og Almannavarnir boða til upplýsingafundar vegna eldsumbrota í Holuhrauni.
Fundurinn fer fram á Icelandair hótel Akureyri, að Þingvallastræti 23, föstudaginn 31. október og hefst kl. 12.00.
Léttur hádegisverður er í boði gegn vægu gjaldi.
Dagskrá fundarins:
- Víðir Reynisson, deildarstjóri hjá Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, útskýrir stöðuna á svæðinu og ræðir opnanir og lokanir.
- Gunnar Valur Sveinsson, verkefnastjóri hjá Samtökum ferðaþjónustunnar, ræðir um vinnu samráðshóps um aðgengi að svæðinu.
- Aðalheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, stýrir fundinum.
- Umræður

Ferðaþjónustuaðilar eru hvattir til að láta sig málefnið varða og mæta á fundinn.

Allir velkomnir!