Uppbyggingasjóður Norðurlands eystra veitir verkefnastyrki til menningarverkefna og stofn og rekstrarstyrki til menningarmála. Sjóðurinn er hluti af samningi um Sóknaráætlun Norðurlands eystra 2015-2019.
Í ár lítur uppbyggingasjóður sérstaklega til verkefna sem jafna stöðu kynjanna og aldurshópa á svæðinu. Auk þess hafa þær umsóknir forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna skilyrða;
- Verkefni sem hvetja til samstarfs einstaklinga, hópa, byggðarlaga eða listgreina. Sérstaklega er horft til verkefna sem eru samstarf þriggja eða fleiri aðila og tengja íbúa á Norðurlandi eystra
- Verkefni sem efla atvinnustarfsemi á sviði menningar og lista
- Verkefni sem fela í sér listsköpun fólks á aldrinum 18-25 ára
- Verkefni sem fela í sér samstarf við önnur lönd á sviðið menningar og lista
Við mat á umsóknum um stofn og rekstrarstyrki lítur uppbyggingarsjóður til eftirtalinna atriða;
- Stuðla að því að efla menningarstarfsemi á sviði lista, safna- og menningararfs
- Stuðla að nýsköpun í menningarstarfi
- Styðja við menningarstarfsemi sem fjölgar atvinnutækifærum á svæðinu
Umsóknum skal skilað rafrænt til uppbyggingarsjóðs á netfangið uppbygging@eything.is á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu Menningarráðs Eyþings. Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar. Tilkynnt verður um úthlutun í apríl. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér verklagsreglur uppbyggingarsjóðs á heimasíðu Menningarráðs Eyþings www.eything.is
Nánari upplýsingar um styrki til menningar veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir; menning@eything.is sími 464 9935. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið uppbygging@eything.is
Uppbyggingarsjóður auglýsir viðveru menningarfulltrúa vegna úthlutunar styrkja úr sjóðnum. Viðtalstímar í Fjallabyggð verða sem hér segir:
Ólafsfjörður - 27. janúar kl. 13:00 - 14:00. Bæjarskrifstofu Ólafsfjarðar, Ólafsvegi 4.
Siglufjörður - 27. janúar kl. 14:30 - 16:00. Bæjarskrifstofu Siglufjarðar, Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24.
Viðtalstímar á öðrum tímum eftir samkomulagi.