Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra auglýsir eftir umsóknum fyrir árið 2021. Hlutverk sjóðsins er að styrkja menningar-, atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni. Auk þess veitir sjóðurinn stofn- og rekstrarstyrki til menningarmála. Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður og miðast styrkveitingar við árið 2021.
Opnað verður fyrir umsóknir kl. 12:00, 5. október.
Umsóknarfrestur er til og með kl. 12:00, 4. nóvember.
Sótt er um á rafrænni umsóknargátt sem er á heimasíðu SSNE: www.ssne.is
***Breytingar á viðverutíma SSNE vegna styrkumsókna í Uppbyggingarsjóð***
Boðið verður upp á rafræna aðstoð til allra þeirra sem hyggjast sækja um styrk í Uppbyggingarsjóð en hægt er að bóka tíma hjá ráðgjöfum SSNE í gegnum tölvupóst eða í síma 464 5400. Opið er fyrir umsóknir til 4 nóvember og ekki er útilokað að við heimsækjum áður auglýsta staði áður en fresturinn rennur út, en til þess þarf neyðarstigi að vera aflétt.
Frekari upplýsingar veita:
Ari Páll Pálsson aripall@ssne.is sími 464-5412 Verkefnastyrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar
Rebekka K. Garðarsdóttir rebekka@ssne.is sími 464-5405 Verkefnastyrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar
Vigdís Rún Jónsdóttir vigdis@ssne.is sími 464-5404 Verkefnastyrkir á sviði menningar & stofn-og rekstrarstyrkir á sviði menninga