Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra auglýsir eftir umsóknum

Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra auglýsir eftir umsóknum fyrir árið 2018

Hlutverk sjóðsins er að styrkja menningar-, atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni. Auk þess veitir sjóðurinn stofn- og rekstrarstyrki til menningarmála.
Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður og miðast styrkveitingar við árið 2018.

Opnað verður fyrir umsóknir og umsóknarfrestur er til og með kl. 29. nóvember nk.

Sótt er um á rafrænni umsóknargátt sem er á heimasíðu Eyþings www.eything.is

Starfsmenn Eyþings og atvinnuþróunarfélaganna verða með viðveru á starfssvæðinu þar sem veitt verður ráðgjöf við gerð umsókna.

Viðvera starfsmanna uppbyggingarsjóðs verður á eftirfarandi stöðum í Fjallabyggð:

  • Ólafsfjörður 14. nóvember  kl. 13:00-14:00            Bókasafni Fjallabyggðar Ólafsfirði
  • Siglufjörður 14. nóvember  kl. 14:30-16:00            Ráðhúsinu Siglufirði

Frekari upplýsingar veita:

Ari Páll Pálsson netfang aripall@atthing.is sími 464 0416
Baldvin Valdemarsson á netfang baldvin@afe.is  eða í síma 460 5701
Vigdís Rún Jónsdóttir netfang vigdis@eything.is