Fyrirhugað er að stofnfundur samtakna verði haldin í Reykjavík í lok maí og verður
fundurinn auglýstur í fjölmiðlum og á vefsvæðum sem láta sig varða málefni Fjallabyggðar.
Fljótlega eftir hinn formlega stofnfund verður haldinn framhaldsstofnfundur í Fjallabyggð.
Nú um nokkurn tíma hefur undirbúningshópur unnið að stofnun Hollvinasamtaka Heilbrigðsstofnunar Fjallabyggðar, hér eftir nefnt HSF.
Hollvinasamtök eru starfrækt víða um land og hafa víðtækt hlutverk, ekki bara að veita heilbrigðistofnunum fjárhagsstuðning þegar
á þarf að halda heldur einnnig að veita stjórnendum stofnananna stuðning og hvatningu í ýmsum framfara – og hagsmunamálum.
Slík samtök starfa gjarnan með öðrum félagasamtökum sem láta sig samfélagið varða.
Leitað hefur verið eftir samstarfi við Siglfirðingafélagið í Reykjavík, ýmsa brottflutta Ólafsfrðinga, Hollvinasamtök
Sjúkrahússins á Siglufirði og Kvenfélag Sjúkrahússins á Siglufirði.
Markmið HSF er að styðja við bakið á góðu starfi Heilbirgðisstofnunarinnar í Fjallabyggð með því að afla fjár til
tækjakaupa og á búnaði og öðru því sem gerir Heilbirgðisstofnunina öflugri og auðgar líf og bætir líðan
sjúklinga.
Við sameiningu bæjarfélagannna Siglufjarðar og Ólafsfjarðar og gífurlega aukningu ferðamanna eftir tilkomu Héðinsfjarðargangna er
afskaplega mikilvægt að í Fjallabyggð sé sterk og öflug heilbrigðisstofnun sem er í stakk búin til að veita heimamönnum og
ferðafólki þá þjónustu sem það þarf á að halda.
Fyrirhugað er að stofnfundur samtakna verði haldin í Reykjavík í lok maí og verður fundurinn auglýstur í fjölmiðlum og á
vefsvæðum sem láta sig varða málefni Fjallabyggðar. Fljótlega eftir hinn formlega stofnfund verður haldinn framhaldsstofnfundur í
Fjallabyggð.
Nánari upplýsingar gefa;
Theodór Júlíusson / theodor@borgarleikhus.is
Ómar Hauksson / omar.hauk@simnet.is