Ungir blúsarar óskast

Mynd frá Blues-hátíð í Ólafsfirði. Fengin af heimasíðu hátíðarinnar.
Mynd frá Blues-hátíð í Ólafsfirði. Fengin af heimasíðu hátíðarinnar.
Blúshátíðin í Ólafsfirði auglýsir eftir ungum og efnilegum tónlistarmönnum af starfssvæði Meningarráðs Eyþings, til að spila á BlueNorthMusic festival í Ólafsfirði laugardaginn 28. júní nk.
Um er að ræða tónleika sem haldnir verða úti við menningarhúsið Tjarnarborg í tengslum við útimarkað og skemmtun á hátíðinni. Laun og ferðakostnaður verður greiddur. Áhugaverðasta bandið getur svo fengið tækifæri á að koma fram á lokakvöldi blúshátíðarinnar í Menningarhúsinu Tjarnarborg. 
Til greina kemur að ráð allt að fjórar hljómsveitir og skiptir stærð og samsetning ekki máli, allt kemur til greina (líka einstaklingar).
Við munum svo bjóða upp á atvinnumann í tónlist til að spila af fingrum fram með viðkomandi.
Einnig er hafin skráning borða á útimarkaðinn sjálfan.

Nánari upplýsingar og umsóknir hjá Gísla Rúnari í síma 863-4369 eða á gislirunar4@gmail.com

Verkefnið er styrk af Menningarráði Eyþings 

Jassklúbbur Ólafsfjarðar – Blúsaður klúbbur