Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Framhaldsskólann við utanverðan Eyjafjörð rann út þriðjudaginn 15. desember sl.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust sjö umsóknir um stöðuna, frá fjórum konum og þremur körlum.
Umsækjendur eru:
Elías Gunnar Þorbjörnsson, meistaranemi
Jón Eggert Bragason, aðstoðarskólameistari við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ
Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir, skólastjóri Grunnskóla Ólafsfjarðar
Lára Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri
Lind Völundardóttir, meistaranemi
Margrét Lóa Jónsdóttir, verkefnastjóri
Pétur Ingi Guðmundsson, aðstoðarskólameistari við Fjölbrautaskóla Snæfellinga.
Miðað er við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá 1. janúar nk., að fenginni umsögn hluteigandi skólanefndar,
sbr. 1. mgr. 6. gr. laga um framhaldsskóla,
nr. 92/2008 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins
nr. 70/1996, með síðari breytingum.