Umsóknir í Umhverfissjóð Íslenskra Fjallaleiðsögumanna

Umhverfissjóður Íslenskra Fjallaleiðsögumanna hefur opnað fyrir styrkumsóknir úr sjóðnum.

Sjóðurinn veitir styrki á tveggja ára fresti og er ætlað að úthluta styrkjum til verkefna sem stuðla að verndun náttúru Íslands.

Fyrirtæki, einstaklingar, eignarhaldsfélög, félagasamtök, sveitarfélög og opinberar stofnanir geta fengið framlög frá sjóðnum. Umsóknaraðilar geta einnig verið samstarf nokkurra aðila.

Umsóknafrestur rennur út 10. april 2018.

Sjá nánar um reglur sjóðsins á heimasíðu félagsins.