Umsókn um styrki 2014 - síðasti umsóknardagur 16. sept

Styrkir, framlög, erindi, tillögur og/eða ábendingar er varða fjárhagsáætlun 2014

Erindi, tillögur og/eða ábendingar er varða fjárhagsáætlun 2014

Þeir íbúar, félagasamtök og fyrirtæki í Fjallabyggð sem vilja koma með erindi, tillögur og/eða ábendingar er varða fjárhagsáætlun 2014
eru hvattir til að koma þeim til undirritaðs í síðasta lagi 16. september 2013.

Styrkir eða framlög vegna starfsemi 2014

Þeir einstaklingar og félagasamtök sem hafa hug á að sækja um styrki eða framlög vegna starfsemi ársins 2014 er einnig bent á að senda inn umsóknir til bæjaryfirvalda í síðasta lagi 16. september nk.

Eyðublöð má finna á heimasíðu sveitarfélagsins.
Nánari upplýsingar eru á umsóknareyðublaði.

Skilyrði er að umsókn fylgi m.a. greinargerð sem skýrir verkefnið sem sótt er um styrk til, svo og síðasta skattframtal eða ársreikningur.
Áskilinn er réttur til að krefjast fyllri gagna þyki þess þörf.

Styrkumsóknir skal senda til:

Fjallabyggðar Gránugötu 24, 580 Siglufirði, eða
Fjallabyggðar Ólafsvegi 4, 625 Ólafsfirði.
Einnig hægt með rafrænum hætti á fjallabyggd@fjallabyggd.is

Fjallabyggð 2. sept. 2013
Sigurður Valur Ásbjarnarson,
bæjarstjóri Fjallabyggðar