Umsagnir bæjarstjóra í Samráðsgátt stjórnvalda

Nýlega voru “Áform um frumvarp til laga um heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu og rekstur samgönguinnviða”, birt inn á Samráðsgátt stjórnvalda og opnað fyrir umsagnir um áformin. Í þessum áformum er opnað fyrir möguleika á gjaldskyldu í öllum jarðgöngum landsins. Sigríður Ingvarsdóttir bæjarstjóri Fjallabyggðar sendi inn umsögn fyrir hönd bæjarstjórnar Fjallabyggðar sem lesa má hér

 

Sigríður Ingvarsdóttir bæjarstjóri hefur einnig sent inn umsögn, fyrir hönd bæjarstjórnar Fjallabyggðar, um drög að frumvarpi til laga um sýslumenn. Umsögnina má lesa hér