Umhverfisdagur í grunnskólanum

Síðastliðin föstudag var umhverfisdagur í grunnskólanum og af því tilefni fóru nemendur við Tjarnarstíg út um miðjan morgun og gerðu fínt í næsta nágrenni við skólann. 
Það var þó heldur fámennur hópur þar sem meirihluti nemenda við Tjarnarstíg var á Andrésar Andarleikunum. Afraksturinn lét þó ekki á sér standa og að launum var svo boðið upp á ýmsa skemmtilega afþreyingu það sem eftir var skóladags. Myndir frá deginum má sjá á heimasíðu skólans.


Nemendur með afraksturinn