Umferðaröryggi við leikskóla í Fjallabyggð – Útboð

Um er að ræða tvö aðskilin verk. Annars vegar við leikskólann á Ólafsfirði og hins vegar leikskólann á Siglufirði. Sér útboðsgögn eru fyrir hvort verk og því ekki skylda að bjóða í bæði verkin. Verkið felst m.a. í upprifi á yfirborðsefnum, malbikun, gerð hellulagðra upphækkana, uppsetningu skilta, málun/mössun yfirborðsmerkinga og gerð steyptra stétta. Einnig þarf að færa niðurföll.

Hægt er að nálgast útboðsgögn rafrænt á netfangið armann@fjallabyggd.is

Tilboð skulu hafa borist í tölvupósti á netfangið armann@fjallabyggd.is eða í lokuðu og merktu umslagi í afgreiðslu þjónustuvers Fjallabyggðar, eigi síðar en á þeim tíma sem getið er um í grein „0.1.2 Útboðsform – útboðsyfirlit“ og verða þau opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda er þess óska.

Leikskóli Fjallabyggðar Siglufirði

Leikskóli Fjallabyggðar Ólafsfirði