Umf. Glói varð 20 ára fyrr á þessu ári og í tilefni afmælisins bauð félagið 4-9 ára börnum í
sveitarfélaginu upp á leiksýningu í samstarfi við Grunnskóla og Leikskóla Fjallabyggðar.
Sýning var í gær þann 17. sept. Um var að ræða leiksýninguna Halla frá Kómedíuleikhúsinu en leikritið
er byggt á samnefndri ljóðabók vestfirska skáldsins Steins Steinarrs.
Halla fjallar um samnefnda stúlku sem býr hjá afa sínum í dálitlu þorpi við dálítinn sjó. Það er margt sem
þarf að gera í þorpi út við sjó og hve mikið sem fiskast það fiskast aldrei nóg. Afinn sækir sjóinn enda er hann mikil
aflakló og það er Halla afastelpan hans einnig. Svo gerist það dag einn að afi segir við Höllu: Þú ert ekki nógu feit það er
mér nokkuð kappsmál að koma þér í sveit. Þá tekur sagan á sig ævintýralega mynd en allt fer þó vel að
lokum.
Leikgerð/leikur og dans var í höndum Elfars Loga Hannessonar og finnska dansarans Henna-Riikka Nurmi.
Var verkið sýnt í grunnskólahúsum beggja bæjarkjarnanna og krakkarnir skemmtu sér ákaflega vel á sýningunni. Höfðu
þau einnig mjög gaman af að skoða leikmunina að verkinu loknu og spjalla við leikarana.
Leiksýningin Halla er fyrsti viðburður ljóðahátíðarinnar Haustglæður, sem áður hét Glóð, en að
hátíðinni standa Umf Glói og Ljóðasetur Íslands. Fleiri viðburðir eru fyrirhugaðir næstu vikurnar.