Um 50 manns mætti í fyrsta danstímann í Tjarnarborg

Dansnámskeiðið sem stýrihópur um heilsueflandi samfélag auglýsti opið íbúum sveitarfélagsins fór vel af stað. Um 50 manns mætti í fyrsta tímann.

Heyrst hafði af áhuga nágranna Fjallabyggðar í austri og voru Dalvíkingar boðnir velkomnir með.

Dansnámskeiðið verður næstu fimm sunnudagskvöld í Tjarnarborg kl. 20.00.

Lögð er áhersla á samkvæmisdansa og danskennari er Ingunn Hallgrímsdóttir.

Engin þörf er á skráningu og eru íbúar velkomnir svo lengi sem húsrúm leyfir