Trilludagar á Siglufirði 23. júlí - dagskrá

Trilludagar verða á Siglufirði 23. júlí nk. Á Trilludögum finna allir eitthvað við sitt hæfi. Gestum verður boðið á sjóstöng og í útsýnissiglingu út á fjörðinn fagra. Kiwanismenn standa grillvaktina þar sem öllum verður boðið að smakka dýrindis fisk beint úr hafi. Skemmtileg afþreying bæði á sjó og landi fyrir börnin, hoppukastalar verða á Rauðkutúni. Tónlistin mun svo óma af Trillusviði yfir daginn.

Trilludagur 23. júlí 

kl. 10:00 - 16:00         Frítt á sjóstöng fyrir alla fjölskylduna. Vesti og sjóstangir um borð.

Frítt á sjóstöng og útsýnissiglingu út á fjörðinn fagra fyrir alla fjölskylduna.
Veiðistangir og beita verða um borð. Allir koma í land með fisk á grillið.

Allir velkomnir að hafa með sína eigin veiðistöng og flotvesti ef þeir eiga heima. 

kl. 10:00 - 16:00         Grill á hafnarsvæðinu.
Kiwanismenn á Siglufirði standa við götugrillið frá því fyrsta trilla leggur af stað þar til sú síðasta kemur í land.
Þegar komið er að landi er gert að aflanum af fagfólki og hann síðan grillaður. Gestir fá svo að smakka. Boðið er upp á salat með fisknum.

Kl. 10:00-16:00           Grill, fjör og tónlist á hafnarsvæðinu allan daginn

  • Fjölskyldugrill; fiskur, pylsur og drykkur fyrir alla fjölskylduna
  • Stúlli og Danni á sviði
  • Hoppukastalar fyrir káta krakka
  • Síldargengið fer rúnt um bæinn á gamla vörubílnum endar svo við Roaldsbrakka þar sem slegið verður upp síldarsöltun og bryggjuballi eins og þeim einum er lagið.

Eitthvað  áhugavert að gerast alla Trilludagshelgina fyrir alla fjölskylduna

  • Söfn og setur verða opin
  • Málverka- og handverkssýningar
  • Veitingastaðir með eitthvað gott á matseðli
  • Ljóðlist og kveðskapur

Dagskrá Trilludaga 2022