Tónleikar í Alþýðuhúsinu - Anna Fält

Anna Fält
Anna Fält

Finnska þjóðlagasöngkonan Anna Fält heldur eldhústónleika í Alþýðuhúsinu á Siglufirði sunnudaginn 14. júní kl. 14:00.

Anna dvaldi ásamt systur sinni í Herhúsinu í vetur og hélt tvenna tónleika hér á Siglufirði.
Hún syngur án undirleiks og beitir röddinni á undurfagran og ævintýralegan hátt, svo gestir hrífast auðveldlega með.

Verið velkomin að eiga notalega stund með okkur á sunnudaginn, heitt á könnunni og allir velkomnir.