Tímabundin 50% staða íþróttakennara laus fyrir næsta skólaár

Grunnskóli Fjallabyggðar auglýsir 50% stöðu íþróttakennara á yngra stigi í starfsstöð skólans á Siglufirði. Ráðningin  er tímabundin til eins árs vegna forfalla.

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi FG og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Umsókn um starfið skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um tvo umsagnaraðila.

Umsóknum skal skila á netfangið erlag@fjallaskolar.is Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknarfrestur er til 30. júní.  Umsóknir gilda i sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Upplýsingar um starfið veitir Erla Gunnlaugsdóttir skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar í gegnum netfangið erlag@fjallaskolar.is  eða síma 865-2030.