Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi

Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028 vegna heitavatnsborholu (SK-1) og nýrrar hitaveitulagnar í Skarðsdal að þéttbýlinu í Siglufirði


Bæjarstjóri Fjallabyggðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028 ásamt umhverfisskýrslu skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsbreytingin snýr að heitavatnsborholu staðsettri í Skarðsdal og hitaveitulögn sem liggja mun frá borholunni að stjórnhúsi/heitavatnstanki staðsettum ofan þéttbýlisins í Siglufirði.

Tillagan er sett fram í greinargerð með umhverfisskýrslu og á tveimur uppdráttum, þéttbýlisuppdrætti fyrir Siglufjörð í mælikvarðanum 1:10.000 og sveitarfélagsuppdrætti í mælikvarðanum 1:50.000.

Tillagan verður til sýnis hjá Skipulagsstofnun og á skrifstofum Fjallabyggðar að Gránugötu 24 á Siglufirði og Ólafsvegi 4 í Ólafsfirði frá og með þriðjudeginum 24. maí til þriðjudagsins 5. júlí 2011.

Gögnin verða einnig aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins á fyrrgreindum tíma - www.fjallabyggd.is -

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Skriflegar athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist til bæjarstjóra á bæjarskrifstofu Fjallabyggðar eigi síðar en kl. 16.00 mánudaginn 4. júlí 2011.

Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.

Bæjarstjóri Fjallabyggðar



Greinagerð



Þéttbýlisuppdráttur


Dreifbýlisuppdráttur