Frá Umhverfisfulltrúa Fjallabyggðar og
fulltrúa Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra
Íbúar á Siglufirði hafa kvartað undan mikilli ólykt. Einkum hafa kvartnir komið frá
íbúum í sunnanverðum bænum og hafa þeir kennt um fráveituvatni, sem rennur í fjöruborðið um 100 m frá frá
vegi.
Fjaran sem um ræðir er við Suðurtanga, í krikanum næst Eyrarflöt.
Fráveituvatnið sem um ræðir kemur frá um 90 íbúðum, en auk þess rennur í krikann yfirborðsvatn af götum.
Umhverfisfulltrúi og heilbrigðisfulltrúi hafa gert athuganir á hvaðan megnasta fýlan berst úr fjörunni og er það
samdóma álit þeirra að það sé innst í krikanum en fráveitulögnin sem um ræðir liggur utar.
Í krikanum er að finna þykkt lag af rotnandi þara og er það talsvert frá þeim stað, þar sem
útrásin kemur í sjó.
Þegar skafið er ofan af yfirborði rotnandi þarans, kemur í ljós kolsvart lag af lífrænum massa sem gefur frá sér megna
brennisteinsfýlu. Greinilegt er að lyktin er mest þar sem minnst vatnsskipti eru í fjöruborðinu við Eyrarflöt og kemur að minnstum hluta frá
skolplögn.
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra tók sýni úr fjöruborðinu og verða niðurstöður þeirra kynntar fyrir íbúum og
öðrum sem hafa áhuga á þeim.
Umhverfisfulltrúi Valur Þór Hilmarsson er að undirbúa tillögur til
úrbóta sem verða lagðar fyrir bæjarráð.
Umhverfisfulltrúi Fjallabyggðar og Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra hafa gert athugun á
fráveitumálum í Fjallabyggð og leiðum til úrbóta í málaflokknum. Sjá má samantekt á niðurstöðum
sýnatökum á Siglufirði og Ólafsfirði á heimasíðu Heilbrigðiseftirlitsins www.hnv.is (Sjá Fráveita Fjallabyggð sýnataka við fráveitur og baðstaði
2012).
Í framhaldi af gerð samantektarinnar hefur deildarstjóri tæknideildar Fjallabyggðar farið í vinnu við úrbætur m.a. í samráði
við Bólholt ehf og er von á framkvæmdaáætlun innan tíðar.
Valur Þór Hilmarsson, umhverfisfulltrúi S: 8440220
Sigurjón Þórðarson, heilbrigðisfulltrúi