Þrettándagleði og brenna

Mynd: www.siglo.is
Mynd: www.siglo.is

Árleg þrettándagleði í Fjallabyggð verður í dag kl. 18:00. Dagskráin hefst með blysför frá Ráðhústorginu á Siglufirði. Eru allir hvattir til að mæta i grímubúningum. Í lok brennu verður flugeldasýning. Að því loknu verður diskó á Rauðku fyrir börnin.  Kiwanisklúbburinn Skjöldur í samvinnu við 10. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar skipuleggur viðburðinn.