Þorbjörn ráðinn yfirhafnarvörður

Þorbjörn Sigurðsson yfirhafnarvörður
Þorbjörn Sigurðsson yfirhafnarvörður
Á fundi bæjarráðs þann 22. maí sl. var samþykkt að ráða Þorbjörn Sigurðsson í starf yfirhafnarvarðar.
Capacent var fengið til að meta hæfi umsækjanda og var niðurstaða Capacent að Þorbjörn Sigurðsson uppfyllti best þær kröfur sem gerðar voru til umsækjanda. Þorbjörn gengdi starfi hafnarvarðar við Fjallabyggðarhafnir og hefur starf hans nú þegar verið auglýst.  Alls voru 12 umsækjendur um starf yfirhafnarvarðar. Er Þorbirni óskað til hamingju með nýtt starf.