Þjónustumiðstöð Fjallabyggðar auglýsir lausa stöðu

Starfsmaður óskast í þjónustumiðstöð Fjallabyggðar.

Fjallabyggð leitar eftir áhugasömum einstaklingi til að sinna vatns- og fráveitumálum auk annarra almennra verkefna í þjónustumiðstöð. Æskilegt er að starfsmaðurinn hafi iðnmenntun á sviði pípulagna eða vélvirkjun. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Sótt er um starfið inn á íbúagátt - rafræn Fjallabyggð á heimasíðu Fjallabyggðar, fjallabyggd.is. Umsóknarfrestur er til og með 15. júlí nk. 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Birgir Ingimarsson, bæjarverkstjóri í þjónustumiðstöð Fjallabyggðar í síma 893 1467.