Þjóðleikur á Norðurlandi

Þjóðleikur auglýsir eftir hópum til þátttöku. Þjóðleikur er stórt leiklistarverkefni sem haldið er á öllu Norðurlandi í samstarfi við Þjóðleikhúsið og fjölmarga áhugasama aðila. Verkefnið nær til alls Norðurlands, allt frá Bakkafirði til Húnavatnssýslna.  

Hvaða hópar geta sótt um?

Allir hópar mega sækja um að vera með í Þjóðleik, svo lengi sem þeir uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Að meðlimir hópsins (leikararnir) séu að minnsta kosti átta talsins og allir á aldrinum 13-20 ára, ekkert hámark er á fjölda.
  • Að fyrir hópnum fari einn eða fleiri leiðbeinendur eldri en 20 ára, þar með talinn að minnsta kosti einn sem gegnir hlutverki leikstjóra.

Hvað svo?

  • Þrjú glæný leikrit hafa verið skrifuð fyrir Þjóðleik, sem hóparnir geta valið úr. Höfundarnir eru: Jón Atli Jónasson, Kristín Ómarsdóttir, Brynhildur Guðjónsdóttir og Ólafur Egill Egilsson sem skrifa verk í sameiningu. Hóparnir velja sér eitt af þessum verkum.
  • Stuðningur er veittur til hópanna í formi ráðgjafar og námskeiðahalds
  • Leiðbeinendur hópanna fara námskeið í Þjóðleikhúsinu helgina 15. - 17. október 2010 þar sem listrænir stjórnendur í fremstu röð verða til leiðsagnar.
  • Hver hópur setur upp leiksýningu í sinni heimabyggð og frumsýnir þegar honum hentar
  • Tækninámskeið á Norðurlandi (ljósahönnun og fl.) helgina 7. - 9. jan. 2011. Bæði leiðbeinandanámskeið og tækninámskeið eru þátttakendum að kostnaðarlausu.
  • Helgina 1.-3. apríl verður haldin lokahátíð þar sem hóparnir koma saman með sýningar sínar.

Umsóknarfrestur er til 6. október 2010.

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu Rósenborgar  http://www.rosenborg.is/  og gegnum facebook-síðu Þjóðleiks á Norðurlandi.

Einnig má nálgast umsóknareyðublöð hjá  Vigdísi Jakobsdóttur vigdis@thjodleikhusid.is  sími: 899 0272 og Guðrúnu Brynleifsdóttur gudrunb@skagafjordur.is  sími: 455 6115 en báðar sitja þær í  framkvæmdaráði Þjóðleiks.

Umsóknir sendist á netfangið: thjodleikur@gmail.com  eða bréfleiðis til Þjóðleiks á Norðurlandi, ráðhús, Skagfirðingabraut 21, 550 Sauðárkrókur