Þjóðhátíðardagurinn tókst vel

Nýstúdent Erla Marý Sigurpálsdóttir
Nýstúdent Erla Marý Sigurpálsdóttir

Þjóðhátíðardeginum 17. júní var fagnað í Fjallabyggð í mildu og þurru veðri síðastliðinn laugardag. Hófst dagurinn á því að fánar voru dregnir að húni kl. 9 í báðum bæjarkjörnum. Hátíðarathöfn hófst svo kl. 11 við minnisvarða Sr. Bjarna Þorsteinssonar við Siglufjarðarkirkju þegar nýstúdent, Erla Marý Sigurpálsdóttir, lagði blómsveig að minnisvarða sr. Bjarna. Að því búnu söng Kirkjukór Siglufjarðar, Ég vil elska mitt land, lag sr. Bjarna við ljóð Guðmundar Magnússonar. Gunnar Ingi Birgisson, bæjarstjóri flutti ávarp tileinkað minningu sr. Bjarna og verka hans. Að endingu söng kirkjukórinn svo annað laga sr. Bjarna, við ljóð Sigurðar Jónssonar frá Arnarvatni, Blessuð sértu sveitin mín.

Kl. 13 sýndu yngstu iðkendur KF listir sínar á Ólafsfjarðarvelli og svo tók við hátíðardagskrá við Menningarhúsið Tjarnarborg. Hátíðarræðu flutti Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri og Berglind Hrönn Hlynsdóttir var Fjallkona Fjallabyggðar í ár.

Síðan tóku við fjölbreytt tónlistaratriði. Þrír félagar út barnakórnum Gling Gló sungu tvö lög við undirleik Ave Kara Sillaots. Ronja Helgadóttir söng eitt lag og að endingu tóku þeir félagar, Stúlli og Danni við sviðinu og héldu uppi fjörinu fram eftir degi.

Að venju voru það leiktækin sem áttu hug og hjörtu barnanna. Margir biðu svo eftir vatnsrennibrautinni sem er gerð úr skíðastökkpallinum og nýtur hún alltaf jafn mikilla vinsælda.

Það var menningar- og fræðslunefnd slökkviliðsins í Ólafsfirði sem hélt utan um framkvæmd dagskrár í Ólafsfirði.

Klukkan 15 opnaði bæjarlistamaður Fjallabyggðar, Arnfinna Björnsdóttir sýningu á verkum sínum á Kaffi Klöru í Ólafsfirði og kvenfélagið Æskan bauð öllum til 17. júní kaffis í Tjarnarborg í tilefni af 100 ára afmæli félagsins.

Hér má sjá nokkrar myndir frá deginum.