Þjóðarsáttmáli um baráttu um einelti

Vakin er athygli á þjóðarsáttmála um baráttu gegn einelti. Hér er hægt að skoða afrit af undirskriftum á þjóðarsáttmála um baráttu gegn einelti frá því í nóvember sl. Skjalið er undirritað af ráðherrum og eða fulltrúa ráðherra auk borgarstjóra og framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga auk fulltrúa fjölda samtaka, félaga og stofnanna sem öll  á einn eða annan hátt láta sig þetta mikilvæga málefni varða. 

Verkefnastjórn um aðgerðir gegn einelti  þætti vænt um ef þess skjöl færu sem víðast og yrðu sýnileg sem flestum. (Sjá greinargerð starfshóps).

Við viljum einnig vekja athygli á að heimasíðan Gegn einelti.is hefur verið endurbætt. Meðal annars hefur undirskriftakerfi síðunnar verið einfaldað til muna þannig að mjög einfalt er fyrir alla, jafnt unga sem aldna, að undirrita þjóðarsáttmálann um baráttu gegn einelti. Við hvetjum fólk eindregið til þess að skrifa undir sáttmálann og sýna þar með hug sinn í verki gagnvart  því samfélagslega vandamáli sem einelti er.  Á síðunni eru  stuttar fréttir og ýmis fróðleikur sem tengist málefninu.

Óskað er eftir því að fréttir af vettvangi um vel heppnuð verkefni í baráttunni gegn einelti. Efnið þarf ekki að einskorðast við texta  því  myndir, myndbönd, heimasíður o.fl. í þeim dúr eru dæmi um efni sem ætti erindi inn á síðuna okkar. Efni má senda á póstfangið arni.gudmundsson@mrn.is