,,Þekktu rauðu ljósin - Soroptimistar hafna ofbeldi” er slagorð íslenskra Soroptimista.
Átakið hefst á alþjóðadegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbudnu ofbeldi 25. nóvember og lýkur á mannréttindadegi Sameinuðu þjóðanna 10. desember.
Um allan heim sameinast hin ýmsu samtök í því að vekja athygli á kynbundnu ofbeldi með ýmsum hætti en roðagylltur litur er einkenni átaksins, #roðagyllumheiminn, #orangetheworld en hann á að tákna bjartari framtíð.
Markmið 16 daga átaksins að þessu sinni er að beina athyglinni að forvörnum og fræðslu og hafa Soroptimistar útbúið fræðsluefni um hinar ýmsu myndir ofbeldis sem flokka má í sex flokka: andlegt ofbeldi, líkamlegt ofbeldi, kynferðislegt ofbeldi, fjárhagslegt ofbeldi, stafrænt ofbeldi og eltihrellir. Ekki er alltaf auðvelt að átta sig á því að um ofbeldi sé að ræða í samböndum fólks en það getur átt sér stað óháð kyni, aldri og kynhneigð. Samkvæmt rannsóknum hafa 15% til 20% íslenskra kvenna og 5% til 10% íslenskra karla verið beitt ofbeldi af maka sínum eða þeim sem þau voru í ástarsambandi við og líklega búa um 2% íslenskra kvenna við ofbeldi hverju sinni. Íslenskir Soroptimistar, sem eru nú um 600 í 19 klúbbum, hvetja alla til að kynna sér málefnið, fræðast og leggja sitt af mörkum til að stöðva ofbeldi. Soroptimistasystur munu þessa 16 daga vekja athygli meðal annars með því að klæðast roðagylltum fatnaði, selja ýmsan varning, birta greinar og fræðsluefni. Roðagyllti liturinn verður áberandi á byggingum víða um land og einnig á sendiráðum Íslands víða um heim. ,,Þekktu rauðu ljósin - Soroptimistar hafna ofbeldi”
Sjá nánar um átakið á síðu Soroptimista