Sýning í Alþýðuhúsinu 1. maí og sunndagskaffi

Sunnudaginn 1. maí kl. 15:00 opnar Lefteris Yakoumakis sýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði.
Yfirskrift sýningarinnar er "Það er enginn Guð vestur af Salina", og fjallar um ferð listamannsins frá Kansas til Kóloradó í Bandaríkjunum.
Lefteris er fæddur í Aþenu árið 1984. Hann nam málun í myndlistadeild Aristotle University í Þessalóniku árin 2003-2008. Hann hefur sýnt verk sín víða, stundað kennslu og ferðast.
Lefteris hefur dvalið hluta úr ári á Siglufirði undanfarin 3 ár og hefur bæjarfélagið og kynni af fólki verið honum innblástur .

Þar sem 1. maí er fyrsti sunnudagur í maímánuði mun Lefteris einnig sjá um " Sunnudagskaffi með skapandi fólki " sem hefst kl. 15:30 . Þar mun hann fjalla um verk sín allmennt og teiknimyndabók ( graphic novel ) sem hann er að vinna í samstarfi við Bandaríska rithöfundinn T.Carl Hardy. Bókin er innblásin af Egils sögu.


Allir velkomnir, kaffiveitingar.

Fjallabyggð, Menningarráð Eyþings, Fiskbúð Siglufjarðar og Egilssíld styðja við menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.