Sýning á verkum Arnars Herbertssonar í Söluturninum á Siglufirði

Mynd: Minningarbrot; Listasafn Fjallabyggðar
Mynd: Minningarbrot; Listasafn Fjallabyggðar

Laugardaginn 22. september sl. var opnuð í Söluturninum á Siglufirði, sýning á nokkrum verka Arnars Herbertssonar en það eru þau Örlygur Kristfinnsson og Guðný Róbertsdóttir eigendur Söluturnsins sem standa fyrir sýningunni. 

Sýningin verður opin um helgar kl.  15:00-17:00 í október

Ný bók um Arnar og list hans fæst á staðnum

Arnar Herbertsson er fæddur á Siglufirði árið 1933 og ólst þar upp. Hann lærði húsamálun sem hann sinnti samhliða myndlistariðkun eftir þörfum. Hann flutti til Reykjavíkur 1958 og nam við Myndlistaskólann í Reykjavík 1959-67. Arnar Herbertsson er fæddur á Siglufirði árið 1933 og ólst þar upp. Hann lærði húsamálun sem hann sinnti samhliða myndlistariðkun eftir þörfum. Hann flutti til Reykjavíkur 1958 og nam við Myndlistaskólann í Reykjavík 1959-67.

Eftir eftir grafíkskeið sitt málaði hann nokkuð af minningarmyndum af æskuslóðum á Siglufirði ásamt altaristöflum í þjóðlegum stíl. Arnar hefur á síðustu árum vakið mikla athygli fyrir litrík abstrakt verk sín.

Arnar hefur hlotið starfslaun úr launasjóði myndlistarmanna og verk eftir hann eru í eigu helstu safna á Ísland. Tvö af verkum Arnars á sýningunni eru í eigu Listasafns Fjallabyggðar.