Sýndu hvað í þér býr!

Námskeið í félagsmálafræðslu á Siglufirði 14. janúar. Námskeið í félagsmálafræðslu verður haldið í íþróttamiðstöðinni Hóli 14.janúar. Námskeiðið hefst klukkan 18:00 og stendur til 22:00. Námskeiðsgjald er 5000 krónur. Ungmennafélag Íslands í samvinnu við Bændasamtök Íslands og Kvenfélagasamband Íslands standa fyrir félagsmálafræðslu um land allt í vetur undir yfirskriftinni ,,Sýndu hvað í þér býr.“ Hlutverk námskeiðsins er sjá félagsmönnum fyrir fræðslu í framkomu og fundarsköpum.
Áhugasömum er einnig bent á að afla sér frekari upplýsingar um verkefnið  hjá Guðrúnu Snorradóttur landsfulltrúa UMFÍ í síma 848-5917 og á gudrun@umfi.is og  Sigurði í síma 861-3379 og á sigurdur@umfi.is