Áhugafólk um öflugt samstarf ferðaþjónustuaðila í Eyjafirði og Akureyrarstofa boðar til súpufundar þriðjudaginn 21. apríl kl 11:30 - 13.00 á Parken (Strikinu) - 4.hæð, Skipagötu 14. Veitingar/kostnaður: Súpa, brauð og kaffi - kr. 1.100,- greiðist á staðnum.
DAGSKRÁ:
11:30 Menningarhúsið Hof - hvað þýðir það fyrir ferðaþjónustuna?
Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, verkefnastjóri fyrir Menningarhúsið Hof
12:15 Sumardagskrá Fjallabyggðar
Inga Eiríksdóttir, markaðs- og kynningarfulltrúi Fjallabyggðar
12.30 Héðinsfjarðargöngin - hverju breyta þau fyrir ferðaþjónustuna?
Jón Hrói Finnsson, þróunarstjóri Fjallabyggðar
13:00 Fundarlok
Fundarstjóri: Kristín Sóley Björnsdóttir, kynningarstjóri Minjasafnsins á Akureyri.
Áhugasamir eru vinsamlega beðnir um að skrá sig fyrir kl 9.00 mánudaginn 20. apríl
Aðilar frá Fjallabyggð skrá sig hjá inga@fjallabyggd.is
Aðilar frá Dalvíkurbyggð skráning hjá margretv@dalvik.is
Aðrir skrá sig hjá Maríu Tryggvadóttur, Akureyrarstofu, á netfangið mariat@akureyri.is