Super Troll Ski Race

Fjórða árið í röð blæs Skíðafélag Siglufjarðar, Skíðaborg, til leiks með glæsilegu fjallaskíðamóti Super Troll Ski Race dagana 11. - 13. maí nk.

Að auki verður tveggja daga dagskrá þar sem skíða- og útvistarfólk getur notið alls þess sem Siglufjörður og Tröllaskagi hafa uppá að bjóða.
Svæðið býr að stórbrotinni náttúru, auk fegurð fjalla og fjarða býður Sigló upp á óþrjótandi möguleika til afþreyingar.

Skráning er hafin á mótið og er veittur 15% afsláttur af skráningargjaldi fyrir 1. apríl.

Allar frekari upplýsingar um mótið er að finna á www.stsr.is