Sunnudagskaffi með skapandi fólki í Alþýðuhúsinu á Siglufirði

Valur Þór Hilmarsson
Valur Þór Hilmarsson

Sunnudaginn 2. júlí 2017 kl. 14.30 - 15.30 verður Valur Þór Hilmarsson með erindi á Sunnudagskaffi með skapandi fólki í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.

Erindið ber yfirskriftina "Tvær holur" - Staðhættir, mannlíf, menning og fjallar um hvernig staðhættir móta samfélög og menningu.

Valur Þór er menntaður garðyrkjufræðingur af umhverfisbraut Garðyrkjuskóla Íslands. Hann er búsettur á Ólafsfirði og hefur starfað að umhverfismálum í yfir 25 ár, komið að úrbótum og uppbyggingu ferðamannastaða og samfélaga um allt land, unnið hjá sveitarfélögum jafnt sem garðyrkjufræðingur og við önnur umhverfisverkefni. Þar að auki hefur hann verið til sjós og lands við ýmis störf.

Kaffiveitingar að loknu erindi og allir velkomnir.

Fjallabyggð, Uppbyggingasjóður/Menningarráð Eyþings, Egilssíld og menningarsjóður Arionbanka á Siglufirði ( Sparisjóðsins ) styðja við menningarstarf í Alþýðuhúsinu.